Mér finnst rosalega gaman í fótbolta. En ég æfi ekki.
Fótboltinn er ansi skemmtileg íþrótt en getur oft verið mjög skrautlegur líka.Leikir fara oft ekki alveg fram eins og áformað var, hvort sem það er vegna handtöku dómara eða þvíumlíkt. Sumir stuðningsmenn fylgja heldur ekki alveg reglunum, frekar en lukkudýrin, og hvernig heldurðu að það sé að spila vitandi það að þú farir í fangelsi ef þú tapar leiknum? Við á 433.is fundum tíu ansi skrautlegar staðreyndir úr fótboltanum sem fólk ætti að hafa gaman af. 1. Feitasti enski landsliðsmaðurinn frá upphafi var markvörður sem hét Willie „Fatty“ Foulke. Hann vó tæplega 140 kíló og spilaði einn leik fyrir England í kringum þar síðustu aldamót. Hann lést einungis 42 ára gamall. 2. Stuðningsmaður Manchester City var bannaður frá heimavelli liðsins árið 1995 eftir að hafa smyglað dauðum hænum inn á Maine Road. Hann fagnaði mörkum City með því að sveifla hænunum í kringum hausinn á sér. 3. Hristo Stoichkov, goðsögn Barcelona og búlgarska landsliðsins, fékk árið 1990 sex mánaða bann fyrir að traðka á fæti dómara í kjölfar rauðs spjalds í bikarleik gegn Real Madrid. 4. Landslið Líberíu slapp við fangelsisvist með því að gera markalaust jafntefli við Gambíu árið 1980. Þjóðhöfðinginn Samuel Doe hafði hótað að henda liðinu í fangelsi ef þeir töpuðu leiknum. 5. Skoska bikarleiknum gegn Falkirk og Inverness Thistle árið 1979 var frestað hvorki meira né minna en 29 sinnum vegna slæms veðurs. 6. Leikmenn Sampdoria og 200 stuðningsmenn gengu 32 kílómetra upp í klaustur rétt hjá Genoa árið 1969 til að þakka Maríu mey fyrir að bjarga þeim frá falli. 7. Árið 1998 var lukkudýr Macclesfield rekið heim fyrir að gefa fingurinn í slagsmálum leikmanna í leik gegn Lincoln City. 8. Hinn 52 ára gamli Pedro Gatica hjólaði frá heimili sínu í Argentínu alla leið til Mexíkó fyrir HM 1986, til þess eins að komast að því að hann hefði ekki efni á miða. Á meðan hann var að reyna að redda sér inn stálu þjófar hjólinu hans. 9. Fótboltaleik í Tansaníu var frestað árið 1978 eftir að dómarinn var handtekinn inni á vellinum. 10. Rúmenski miðjumaðurinn Ion Radu var seldur af 2. deildarliðinu Jiul Petrosani til Valcea árið 1998 fyrri hálft tonn af svínakjöti.

Ég æfi handbolta hjá Stjörnunni. Það er rosalega gaman. Handknattleikur eða handbolti er hópíþrótt þar sem tvö sjö manna lið keppast um að koma bolta í mark. Einn liðsmaður úr hvoru liði er markmaður og er sá eini sem má stíga inn í markteiginn á sínum vallarhelmingi. Í vörn standa hinir sex utan teigsins og reyna að hindra sókn andstæðinganna, í sókn sækja þeir að hinu markinu og reyna koma boltanum í mark andstæðinganna. Liðsmenn mega ekki taka fleiri en þrjú skref án þess að drippla boltanum og mega ekki halda boltanum án þess að senda eða skjóta í meira en þrjár sekúndur. Í hvoru liði eru tveir hornamenn, tvær skyttur, einn miðjumaður, einn línumaður og einn markmaður.
Handboltakappleikur er hraður og yfirleitt eru skoruð mörg mörk miðað við aðrar knattíþróttir.
Handbolti er vinsæl íþrótt á Íslandi og hafa íslenskir handboltamenn náð góðum árangri bæði hér heima og erlendis í gegnum árin.